Njóttu þess að skipuleggja þinn eigin garð og umhverfi
Það er gaman og gefandi að fegra í kringum sig og skapa notalegt umhverfi. Það getur þó verið krefjandi að setja saman marga ólíka hluti á eina lóð og því getur verið snjallt að fá ráðgjöf til að verkið heppnist sem best. Ráðgjafar og landslagsarkitektar BM Vallár veita þér góð ráð til þess að þú getir skapað þinn draumareit.
Við höfum framleitt hellur í yfir 40 ár og eru allar hellurnar framleiddar hérlendis úr íslensku hráefni: steinefnum, vatni og háþróuðu sementi sem stuðlar að sjálfbærni.
Allir litir í hellunum eru náttúrulegir og með því að velja steyputengdar vörur frá BM Vallá velur þú umhverfisvænni valkost.