BM Vallá starfrækir samfélagssjóðinn Hjálparhellu, sem veitir fjárstyrki til fjölbreyttra samfélagsverkefna sem öll eiga það sameiginlegt að hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Helstu styrktarverkefni ársins voru UNICEF á Íslandi og Römpum upp Ísland.
Römpum upp Ísland
BM Vallá hefur frá upphafi, eða 2021, verið hluti af verkefninu Römpum upp Ísland sem snýr að því að auka aðgengi hreyfihamlaðra að verslun og þjónustu á landinu. Þessu magnaða framtaki lauk í ár þegar 1.756 rampar voru reistir um allt land, og það með hellum frá BM Vallá.
UNICEF á Íslandi
BM Vallá hefur frá árinu 2020 veitt UNICEF á Íslandi fjárstyrki til verkefna sem miða að því að bregðast við neyð barna og fjölskyldna þeirra. Nýverið var samningurinn endurnýjaður til næstu þriggja ára, með áherslu á að styðja börn á Gaza í gegnum mannúðaraðstoð. Neyð barna á Gaza er gríðarleg og UNICEF áætlar að 1,1 milljón barna þurfi nú á vernd og hjálp að halda.