Fyrirtækið starfar í samstarfi við Heilsuvernd, viðurkenndan þjónustuaðila á sviði heilsu- og vinnuverndar, sem veitir m.a. trúnaðarlæknisþjónustu, heilsuvernd, ráðgjöf, sálfræðiþjónustu og endurhæfingu. Starfsfólki býðst einnig árleg heilsufarsskoðun og bólusetning gegn inflúensu.
Viðverustefna og viðbrögð við áföllum
Markmið viðverustefnunnar er að bæta velferð, draga úr fjarvistum og tryggja skilvirkt og öruggt vinnuumhverfi. Umfang og vægi fjarvista er metið með Bradford-kvarðanum til að grípa inn í með viðeigandi stuðningi þegar þörf krefur. Auk þess hefur fyrirtækið komið á fót áfallateymi og viðbragðsáætlun til að takast á við alvarleg atvik eins og bráð veikindi eða slys, og veita starfsfólki nauðsynlegan stuðning.
Fræðsla í heilsu- og öryggismálum
Mikil áhersla er lögð á fræðslu og þjálfun í heilsu- og öryggismálum. Allir nýir starfsmenn þurfa að ljúka fjórum öryggisnámskeiðum áður en þeir hefja störf. Í fræðslukerfi fyrirtækisins er sérstakur flokkur tileinkaður heilsueflingu, sem hefur notið mikilla vinsælda. Heilsutengd verkefni eins og Lífshlaupið og Hjólað í vinnuna eru hluti af reglulegri þátttöku starfsfólks.