Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að vaxa og þróast í starfi en ekki síður að skapa umhverfi sem eflir trú einstaklingsins á því að geta þróað hæfileika sína og hæfni. Kjarninn að árangri og settum markmiðum er án efa framaramiðað hugarfar einstaklinga sem kunna að meta áskoranir, sýna þrautseigju og nýta stuðning og styrkleika annarra samstarfsfélaga til vaxtar.
Árið 2024 stórefldum við fræðslustefnuna og mótuðum skýr markmið. Fræðslan spannar nú fjölbreytt svið allt frá faglegri færni til samskipta, vellíðunar og leiðtogahæfni, auk sérstakrar áherslu á íslenskukennslu fyrir fólk af erlendum uppruna. Með fjölgun rafrænna námskeiða og hagnýtra vinnustofa hefur þátttaka margfaldast.
Fræðsla sem kveikir kraft
Mikilvægi gleði og samkenndar er aukin með ýmsum viðburðum sem styrkja liðsheildina. Þar má nefna hreyfiáskoranir, umhverfisdaga, þemadaga og liðakeppnir sem hafa reynst afar vel til að styrkja tengsl og skapa líflegt vinnuumhverfi.
Við vitum að með því að hlúa að fræðslu, samskiptum og gleði í starfi styrkjum við bæði einstaklinginn og fyrirtækið í heild. Slík menning skapar traust, frumkvæði og aukna ánægju sem endurspeglast víða og styður við vegferð okkar og áherslur.