MANNAUÐUR
Mikill metnaður er lagður í að skapa jákvætt vinnuumhverfi og góða vinnustaðamenningu. Við viljum að BM Vallá sé eftirsóttur vinnustaður með öfluga liðsheild, fögnum fjölbreytileikanum og tökum opnum armi á móti ólíkum bakgrunni og menningu.
Heilbrigði og vellíðan
Við leggjum áherslu á góð starfsskilyrði og sköpum tækifæri til starfsþróunar, auk þess sem öflugt fræðslustarf er í gangi. Heilbrigði og vellíðan starfsfólks eru okkur hjartans mál og við hvetjum alla til að hlúa að bæði andlegri, félagslegri og líkamlegri heilsu.
Tíu hamingjulyklar
Mannauðsstefnan sækir innblástur í aðferðir jákvæðrar sálfræði og styðst við tíu hamingjulykla sem leiðarljós að aukinni vellíðan og hamingju. Lögð er áhersla á gagnreyndar aðferðir sem miða að því að efla andlega heilsu og rækta með okkur jákvæða eiginleika.