Starfsemi BM Vallár er fjölbreytt og eru sviðin fjögur talsins ásamt stoðþjónustu sem er hjá móðurfélaginu Hornsteini. Fyrirtækið starfrækir m.a. steypustöð, múr- og helluverksmiðju, húseininga- og smáeininga-framleiðslu ásamt söluskrifstofum á þremur stöðum.
Einnig eru starfræktar tvær rannsóknarstofur þar sem fara fram prófanir, rannsóknir og þróun á þeim vörum sem eru framleiddar hjá fyrirtækinu.
SJÁLFBÆRNI OG UMHVERFISMÁL
Umhverfismál og sjálfbær nýting auðlinda er rauður þráður í starfseminni og hefur BM Vallá sett sér það metnaðarfulla markmið að verða umhverfisvænsti steypuframleiðandi landsins. Stefnt er á að steypuframleiðslan og starfsemin verði kolefnishlutlaus 2030.
Með þessu leggur BM Vallá sitt af mörkum í baráttunni gegn loftslagsvánni og í að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum, í takt við vaxandi áherslu á sjálfbærni og umhverfisvernd í nútímasamfélagi.