Sementsframleiðsla á heimsvísu er um það bil 4.000 milljón tonn á ári og almennt er talið að u.þ.b. 8% af allri kolefnislosun heims séu rakin til framleiðslu sements. Heidelberg Materials, norski sementsbirgir BM Vallár, hefur á síðustu árum unnið að hönnun og byggingu á kolefnisföngunarstöð í Brevik, Noregi.
Stöðin mun geta fangað um 400 þúsund tonn af kolefni (koltvísýring, CO₂) árlega, sem samsvarar um það bil helmingi af útblæstri verksmiðjunnar.
Risastórt loftslagsmál
Sjálft föngunarferlið byggir á því að nýta varma og umframorku frá sementsframleiðslunni. Með þeirri orku sem til fellur ætti að vera hægt að fanga u.þ.b. 55 tonn af kolefni á klukkustund. Fangaða kolefnið frá Brevik verður flutt sjóleiðis til forðastöðvar í Øygarden og þaðan er það flutt með leiðslum til olíusvæðisins Aurora í Norðursjó, þar sem það verður dælt niður til varðveislu í jarðlög.
Kolefnishlutlaust sement
Í árslok verður hægt að bjóða upp á kolefnishlutlaust sement í steypu sem mun gegna lykilhlutverki í því að draga úr loftslagsáhrifum mannvirkjageirans og stórminnka kolefnisspor bygginga.