Umhverfisstjórnunarkerfi BM Vallár byggir á alþjóðlegum stöðlum ISO 14001 og ISO 9001 og tekur jafnframt mið af ESG-viðmiðum. Markmiðið er að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif með stöðugum umbótum, vöktun og skýrt skilgreindum, tímasettum markmiðum sem fylgt er eftir með aðgerðaráætlun.
Sérstök áhersla er lögð á að draga úr kolefnisspori með vistvænni sementsgerðum og þróun nýrra steypuuppskrifta. Jafnframt er unnið markvisst að því að minnka úrgang með bættri flokkun og fræðslu starfsfólks.
Mesti umhverfisávinningurinn næst þó með notkun vistvænni byggingarefna. Þar skiptir samvinna öllu máli, og hefur BM Vallá átt farsælt samstarf við verkkaupa sem deila sömu framtíðarsýn og leggja sig fram um að innleiða vistvænar lausnir í mannvirkjagerð.
Skilgreindir hafa verið ferlar og verklagsreglur sem tryggja að umhverfisstjórnunarkerfið sé virkt í daglegum rekstri, meðal annars með þjálfun starfsfólks, skráningum og reglubundinni skýrslugerð.
Gögn samkvæmt kröfum UFS-leiðbeiningar
Sjálfbærniuppgjör BM Vallár er gert í samræmi við UFS-leiðbeiningar, staðfest af Klöppum grænum lausnum hf. sem veittu aðstoð við gerð uppgjörsins.
Skoða sjálfbærniuppgjör frá Klöppum.