ÁVARP FORSTJÓRA
„Tvær umhverfisviðurkenningar á árinu hvetja okkur enn frekar áfram í viðleitni okkar til að gera mannvirkjagerð landsins vistvænni.“
Þorsteinn Víglundsson, forstjóri
Það er einstaklega ánægjulegt að líta til baka og meta þann árangur sem náðst hefur í umhverfismálum á liðnu ári. Kolefnisspor algengustu steypugerða BM Vallár hefur minnkað um 17% frá árinu 2020 og kolefnisspor starfseminnar í heild um 15,5% á einu ári. Árangurinn byggir á víðtækri samvinnu, nýsköpun og raunverulegri ábyrgð. Þar vegur þungt öflugt samstarf við viðskiptavini, hönnuði og framkvæmdaaðila sem deila sömu sýn; að draga úr kolefnisspori mannvirkja og stuðla að vistvænni framtíð.
Áhersla okkar á vistvænna sement og þróun umhverfisvænni steypugerða hefur skilað sér, bæði í mælanlegum árangri og mikilvægum hvatningarverðlaunum. Á árinu 2024 hlaut BM Vallá viðurkenningu sem Umhverfisfyrirtæki ársins, Kuðunginn og Steinsteypuverðlaunin. Slíkar viðurkenningar eru staðfesting á þeirri stefnu sem við höfum markað og hvati til að gera enn betur.
Við höfum sett það í forgang að minnka kolefnisspor sements, enda ber það ábyrgð á um 85–90% af heildarlosun steinsteypu. Í því samhengi hefur verið unnið að fjölbreyttri nýsköpun, meðal annars þróun nýs bindiefnis úr íslensku móbergi, sem getur haft veruleg jákvæð áhrif á umhverfi byggingariðnaðarins bæði hérlendis og á alþjóðavísu. Þá nálgast mikilvægt skref hjá sementsbirgja okkar, Heidelberg Materials í Noregi, sem er að ljúka við byggingu kolefnisföngunarstöðvar sem mun fanga alla losun frá sementsframleiðslu. Við gerum ráð fyrir að geta boðið upp á kolefnishlutlaust sement hér á landi fyrir árslok 2025.
Við héldum jafnframt áfram þróun Berglindar, vistvænnar steypu sem hefur fengið afar jákvæðar viðtökur. Berglind er nú meginsteyputegund BM Vallár og því notuð í flest mannvirki sem við komum að. Kolefnisspor Berglindar er 20% lægra en kolefnisspor eldri steypugerða BM Vallár. Að auki höfum við þróað Berglindi Svan sem hefur 35% lægra kolefnisspor, auk þess sem ná má enn meiri árangri með samstarfi við hönnuði og verkkaupa. Berglind Svan var meðal annars notuð við byggingu nýs húsnæðis fyrir Félagsbústaði, þar sem kolefnisspor steypunnar var lækkað um 39%. Við hófum einnig tilraunir með endurnýtingu hellubrota í steypu og unnum markvisst að því að bæta úrgangsflokkun í starfsemi okkar með góðum árangri.
Samfélagsleg ábyrgð er órjúfanlegur þáttur í starfsemi BM Vallár. Við styðjum fjölbreytt verkefni í gegnum samfélagssjóðinn Hjálparhellu BM Vallár og höfum tekið virkan þátt í samstarfi til lengri tíma á borð við Römpum upp Ísland, auk samstarfs við UNICEF á Íslandi.
Að lokum vil ég leggja áherslu á það sem skiptir mestu máli í allri þessari vegferð er fólkið okkar. Öflugt, hugmyndaríkt og staðfast teymi sem vinnur saman að því að bæta umhverfisáhrif okkar skref fyrir skref. Engin framþróun væri möguleg án þess krafts og samstöðu sem starfsfólk BM Vallár sýnir dag eftir dag. Allur sá árangur sem hér er rakið er fyrst og fremst þeirra verk.