Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið veitti BM Vallá Kuðunginn 2024, í flokki stærri fyrirtækja, sem viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á sviði umhverfismála.
Skýr skef - Vistvænni valkostir - Fræðsla
Í rökstuðningi dómnefndar kemur fram að BM Vallá hafi sýnt skýra forystu í vistvænni mannvirkjagerð, meðal annars með þróun steypunnar Berglindar, sem dregur úr kolefnisspori um allt að 45%.
Fyrirtækið hefur einnig minnkað losun CO₂ um 4.000 tonn með vistvænna sementi og stuðlar að hringrásarhugsun með nýtingu afgangsefna og þróun hringrásarhúsa.
Loks leggur BM Vallá áherslu á fræðslu og miðlun vistvænna lausna til viðskiptavina og innan greinarinnar.