Fjölbýlishúsið á Frakkastíg 1 verður á sjö hæðum. Þar verða 10 íbúðir, stigahús og lyfta, auk verslunar- og þjónusturýmis á jarðhæð. Undir byggingunni eru geymslur og bílastæði.
Hringrásarsvæði við sjóinn
Svæðið við Frakkastíg er hugsað sem hringrásarsvæði við sjóinn, þar sem sjálfbærni, samfélagsábyrgð og aðlögun að náttúru og menningu eru í forgrunni.
Byggingarefnin vega þyngst
Samkvæmt skýrslu um kolefnislosun byggingariðnaðarins má rekja 55% af heildarlosuninni til byggingarefna og framkvæmda (fasar A1-A5), þar af stafar 45% eingöngu af byggingarefnum (A1-A3). Þetta undirstrikar mikilvægi þess að þróa lausnir sem draga úr kolefnislosun í framleiðslu og notkun byggingarefna. Markmið verkefnisins er að minnka umhverfisáhrif verulega, með áherslu á allt að 50-60% samdrátt í kolefnislosun miðað við hefðbundna hönnun. Steypan í mannvirkinu er Berglind frá BM Vallá enda hefur hún minnsta kolefnissporið.
*Samanborið við steypu samkvæmt kröfu byggingarreglugerðar.