<p>Við starfrækjum öflugt forvarnar- og fræðslustarf til að koma í veg fyrir sjúkdóma og slys af völdum starfseminnar. </p>
Starfsfólk er hvatt til að huga vel að eigin öryggi í störfum með því að gera stuttar áhættugreiningar áður en verk hefjast. Allt starfsfólk hefur skýrt umboð til að stöðva öll verk ef það telur þau ekki nægilega örugg hverju sinni.
Á árinu átti sér stað hörmulegt slys þegar ungur drengur lést eftir árekstur við steypubíl. Atvikið hafði djúpstæð áhrif á allt starfslið okkar og berum við ávallt í huga sársaukann og missinn sem fjölskylda drengsins varð fyrir. Í kjölfar slyssins voru sett í gang úrbótaverkefni með hagaðilum sem miðuðu að því að efla öryggi á verkstað, tryggja öryggi vegfarenda og lágmarka áhættu slysa. Þá var sérstök áhersla lögð á fræðslu sem tengist starfi bílstjóra og að þeir séu ávallt meðvitaðir um nærumhverfi sitt í starfi.
Til að fylgjast með og bæta öryggi og vellíðan starfsfólks eru ýmsar aðferðir og mælikvarðar notaðir, t.d. öryggissamtöl, áhættugreiningar, atvikaskráningar og úrbótaverkefni.
Reglulega eru gerðar innri úttektir, ábendingar eru teknar alvarlega og stefnt er að sífelldum úrbótum. Upplýsingar um atvik, úrbótaverkefni og niðurstöður innri úttekta eru varðveittar í atvikaskráningarkerfi.
Hvert atvik er skoðað gaumgæfilega, sérstaklega ef það krefst fyrstu hjálpar, læknismeðferðar eða veldur fjarveru starfsfólks. Rót vandans er greind og fyrirbyggjandi ráðstafanir eru innleiddar til að hindra endurtekningu slíkra atvika.
Árið einkenndist af verkefnum til að efla öryggi á verkstað ásamt því að bæta hálkuvarnir á vinnustaðnum. Sérmerktir kassar með hálkuvörn og skóflur voru settar við gönguleiðir og var starfsfólk duglegt að nota þessa einföldu en öflugu leið til að draga úr hálkuslysum.
Skráð næstum slys, sem hefðu getað valdið fjarveru eða alvarlegum afleiðingum, eru rannsökuð með sambærilegum hætti og aðrar skráningar sem tengjast öryggismálum.
Árið var helgað innleiðingu þessa smáforrits og tengdum verkefnum sem eru í samræmi við öryggisstjórnunarstaðalinn ISO 45001.
Öryggi á verkstöðum var í forgangi á árinu og ítrun á öllum ferlum sem tengjast öryggisúttektum með tilliti til stærðar og umfangs verka.
Áhersla lögð á notkun á 5S-appi og STOP-spjaldi fyrir starfsfólk til að gera úttektir og skrá ábendingar.
Úrbótaverkefni í tengslum við merkingarmál, hálkuvarnir og öryggismenningu á starfsstöðvum.
Bætt öryggismenning á vinnustað sem fól í sér m.a. markmiðasetningu meðal starfsfólks til að stuðla að bættri öryggismenningu.
Vinna við innleiðingu á ISO45001.
Starfsfólk hefur aðgang að nýju smáforriti (appi), sem er ætlað til að auðvelda skráningu, tilkynningu og eftirfylgni með öryggistengdum athugasemdum innan fyrirtækisins.
Smáforritið, byggist á svokallaðri 5S-aðferðafræði, hjálpar til við að viðhalda hreinu og vel skipulögðu vinnuumhverfi og inniheldur einnig STOP-spjald fyrir aukna öryggisvitund.
Það varð eitt fjarveruslys á starfsfólki
Það urðu fimm slys sem þörfnuðust læknismeðferðar
Á árinu urðu sex slys á starfsfólki
Unnin voru 246 úrbóta- og forvarnarverkefni varðandi heilsu og öryggismál starfsfólks
Fram fór 271 öryggissamtal stjórnanda við starfsfólk
Skráð næstum því slys á starfsfólki voru 326 talsins