Við leggjum mikinn metnað í að styrkja fólkið okkar til frekara náms, starfsþróunar og að skapa góð starfsskilyrði.
BM Vallá leggur áherslu á að ábyrgð og verkferlar séu skýrir og aðgengilegir og byggir stjórnun á gagnsæi og hreinskiptni. Lögð er rík áhersla á jafnrétti og hvers konar mismunun er óheimil. Mikil áhersla er lögð á faglega vinnu þar sem ferlar, árangur og stöðugar úrbætur eru hafðar að leiðarljósi.
Við tilheyrum liðsheild þar sem metnaðarfullt starf er unnið af jákvæðu og ábyrgu fólki í anda jafnræðis. Við viljum gera starfsfólki okkar kleift að samhæfa vinnu og fjölskylduábyrgð
BM Vallá hefur hlotið jafnlaunavottun sem sýnir að fyrirtækið hefur skuldbundið sig til að fylgja jafnlaunastefnu sem er óaðskiljanlegur hluti af launastefnu þess.
Fyrirtækið leggur mikla áherslu á jafnrétti og stendur gegn öllum formum af mismunun. Í stefnunni er einnig innifalin viðbragðsáætlun gegn einelti, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustað.
Aðaltilgangur jafnlaunavottunar er að berjast gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti á vinnumarkaði.
Með jafnlaunavottuninni er tryggt að stjórnkerfið fylgi jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012 og að kröfur hans séu uppfylltar og að verklag og aðferðir gefi skýra mynd af jafnlaunaviðmiðum ásamt því að auðvelt sé að vísa í skjalfest gögn þessu til stuðnings.
Áhersla á aukið upplýsingaflæði hefur einkennt fyrirtækið síðastliðin ár. Mánaðarlegur fréttapóstur er sendur til alls starfsfólks á íslensku, pólsku og ensku. Fréttapósturinn er nýttur til að koma áleiðis ýmsum málefnum sem lagt er kapp á að innleiða í menningu fyrirtækisins. Það hefur t.d. verið lögð aukin áhersla á persónuvernd, stefnur er varða einelti, áreitni, ofbeldi á vinnustað o.s.frv.
Upplýsingaskjáir á öllum starfsstöðvum fyrirtækjanna gegna líka mikilvægu hlutverki í að miðla upplýsingum til starfsfólks.
Við höfum verið einstaklega lánsöm með öflugan mannauð. Margir starfsmenn hafa hlotið brautargengi í starfi með öflugri starfsþróun. Ég er sérlega stolt af því að hjá fyrirtækinu ríkir mikill vilji til að styðja við fólk sem horfir í slík tækifæri.
Starfsfólkið hefur gildi BM Vallár að leiðarljósi í störfum sínum og liggja þau að baki allri fyrirtækjamenningu okkar. Þau eru:
Styrkur: Við byggjum á samvinnu, áræðni og metnaði
Áreiðanleiki: Við erum áreiðanleg og vitum að þekking og reynsla mótar framtíð okkar
Framsýni: Við erum framsýn og höfum ávallt nýsköpun, sjálfbærni og umhverfismál að leiðarljósi