<p><span class="">Við erum eftirsóknarverður vinnustaður sem býður upp á fjölbreytt tækifæri og möguleika til starfsþróunar.</span></p>
BM Vallá ásamt móðurfélaginu Eignarhaldsfélaginu Hornsteini hafa samtals 183 starfsmenn og er hlutfall kvenna 14% og karla 86%. Þrátt fyrir að starfa í geira sem hefur verið talinn karllægur er áhersla lögð á að bæta jafnrétti kynjanna og frá fyrra ári hefur hlutfall kvenna aukist um 2%.
Við lítum á að sveigjanlegur vinnutími ásamt skýrri stefnu um jöfn tækifæri sé mikilvægt skref í átt að jafnréttisumhverfi.
Fræðslumál og símenntun starfsfólks er mikilvægur hluti af mannauðsáherslunum og er viðhöfð öflug fræðslustefna.
Starfsfólk getur fengið styrki til frekara náms og endurmenntunar til að efla færni og þekkingu. Einnig hefur fyrirtækið styrkt starfsfólk til að fá aukin vinnuvélaréttindi og til stjórnunarnáms. Þá þarf allt nýtt starfsfólk að ljúka nýliðafræðslu og öryggisþjálfun áður það hefur störf.
Rafræna fræðslukerfið Samsteypan veitir starfsfólki aðgang að margvíslegu fræðsluefni hvort sem er til að auka færni í starfi eða til að bæta almenna þekkingu á hinum ýmsu sviðum.
Starfsfólk sem er með annað móðurmál en íslensku fær stuðning við að læra og efla íslenskukunnáttu sína og nýverið var Bara tala, stafrænum íslenskukennara, bætt við í verkfærakistuna.
Allt erlent starfsfólk hefur aðgang að Bara Tala og hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa, en um helmingur starfsliðsins hefur nýtt sér kennsluna.
Við höfum sett fræðslumál starfsfólks á oddinn og er áhersla lögð á rafræna fræðslu við allra hæfi. Stuðningur við erlent starfsfólk og íslenskukennslu hefur einnig verið efldur og þar munar sérstaklega um Bara tala.
Mikill metnaður er lagður í að skapa jákvætt vinnuumhverfi fyrir starfsfólk og stuðla að góðri vinnustaðamenningu. Við erum afar stolt af háum starfsaldri, lítilli starfsmannaveltu og því að starfsánægja mældist mjög góð hjá 90% starfshópsins í síðustu vinnustaðagreiningu.
Siða- og samvinnureglurnar, Leiðarljós í samskiptum, eru leiðbeiningar um samvinnu og voru þær mótaðar í samráði við starfsfólk. Þeim er ætlað að ramma betur inn áherslur, reglur og viðmið í tengslum við jákvæð samskipti og samstarf.
Hjá BM Vallá er meirihluti, eða 60% starfsfólks, af erlendu bergi brotinn og ríkir mikil fjölmenning í fyrirtækinu. Flestir eru frá Póllandi en einnig er starfsfólk frá Búrkína Fasó, Eistlandi, Spáni, Írak, Portúgal, Síerra Leóne og Venesúela.
Öll innri upplýsingamiðlun miðast því við að koma efninu á framfæri á íslensku, ensku og á pólsku.
Fyrirtækið leggur mikla áherslu á faglega sérhæfingu í starfsemi sinni. Þar af leiðandi er meirihluti starfsfólksins menntaður í takt við þarfir starfsins. Þetta nær yfir iðn-, tækni- og háskólamenntun, auk sérstakra réttinda svo sem vinnuvélaréttinda og meiraprófs.
Auk þess er lögð mikil áhersla á að viðhalda og miðla þeirri miklu þekkingu og reynslu sem starfsfólk býr yfir sem er lykilatriði í starfsemi fyrirtækisins.
Töluvert svigrúm er til fjarvinnu starfsfólks sem tekur þó mið af eðli starfsins og er miðað við 40% fjarvinnuhlutfall.
BM Vallá leggur mikla áherslu á faglega starfsþróun sem hluta af mannauðsstefnu sinni. Fyrirtækið er meðvitað um mikilvægi þess að bjóða starfsfólki sínu tækifæri til að þróast í starfi og að veita því nauðsynlegan stuðning og tækifæri til að vaxa faglega.
Heilbrigði á sál og líkama er höfð að leiðarljósi í allri vinnu hjá fyrirtækinu og ríkir skilningur á að heilsan sé ein aðalforsenda þess að geta tekið virkan þátt í samfélaginu. Heilsustefnu fyrirtækisins er ætlað að stuðla að bættri heilsu, hvort sem um er að ræða andlega, félagslega eða líkamlega heilsu.
Starfsfólk nýtur einnig þess kostar að fá íþróttastyrki til að lækka kostnað við hreyfingu og íþróttir ásamt því að veittur er styrkur til sálfræðiþjónustu.
Fyrirtækið er í samstarfi við Heilsuvernd sem er viðurkenndur fullgildur þjónustuaðili á sviði heilsu- og vinnuverndar hjá Vinnueftirlitinu.
Heilsuvernd sinnir ýmsu faglegu starfi, s.s. trúnaðarlæknisþjónustu og ráðgjöf varðandi veikindi starfsfólks, heilsuvernd, endurhæfingu, sálfræðiþjónustu og fleira.
Starfsfólki standa til boða árlegar heilsufarsskoðanir og bólusetningar gegn inflúensu. Það nýtir sér sérfræðiaðstoð frá Heilsuvernd þegar þörf krefur.
Í mötuneyti BM Vallár er lögð áhersla á heilsusamlegan mat. Starfsfólk nýtur þess að borða góðan hádegisverð með vinufélögum án kostnaðar, að undanskildum hlunnindaskatti.
Starfsmannafélagið heldur úti öflugu skemmtanastarfi með margvíslegum uppákomum og viðburðum allt árið um kring. Þar á meðal er árleg grillveisla, keilukvöld, golfmót og skemmtikvöld. Ávallt er lögð áhersla á fjölskylduvænar skemmtanir þar sem makar eru velkomnir með.
Eftir starfslok vegna aldurs er hægt að ganga í heiðursklúbb fyrirtækisins sem kallast GIMSTEINN. Um er að ræða félagsskap fyrrverand starfsmanna sem látið hafa af störfum sökum aldurs.
GIMSTEINN stendur fyrir ýmiss konar fræðslu og uppákomum, ásamt því að stuðla að áframhaldandi félagsskap fyrir fyrrverandi starfsmenn. Á árshátíð fyrirtækisins eru nýir GIMSTEINAR vígðir í hópinn. Mikil ánægja er með þetta framtak og einkar ánægjulegt að sjá hvað hópurinn er duglegur að hittast og taka þátt í viðburðum fyrirtækisins.
Á vinnustaðnum er lögð rík áhersla á að byggja upp og viðhalda góðri stemningu með dassi af jákvæðum og uppbyggilegum keppnisanda. Skipulagðar eru margvíslegar keppnir á borð við bleikustu deildina, jólamynd ársins, Eurovision-tippið, fantasy-fótbolta og svo mætti lengi telja. Einnig erum við stolt af því að árlega kýs starfsfólk hjálparhellusamstarfsmanninn sem hefur vakið eftirtekt fyrir starf í þágu samfélagsins.
Mikill metnaður er lagður í að útbúa jólalega mynd og huggulegheit í kringum aðventuna. Svið og starfsstöðvar keppa síðan um hvaða mynd hlýtur verðlaun sem jólamynd ársins.
Sebastian Jablonski var valin Hjálparhella 2023 af samstarfsmönnum sínum. Viðurkenninguna fékk hann fyrir framgöngu sína og óeigingjarnt starf í þágu fjáröflunar fyrir Karmelklaustrið í Hafnarfirði.
Við notum hvert tækifæri til að gera okkur glaðan dag og keppnisandinn fer ekki fram hjá neinum. Það er mikill metnaður lagður í ýmsar uppákomur og það má sjá verðlaunagripi úti um allt fyrirtækið því til staðfestingar.