Markmið um kolefnishlutleysi í starfseminni árið 2030 kallar á markvissa vöruþróun, breytingar á verkferlum og mótvægisaðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Kolefnishlutleysi 2030
Markmið okkar um kolefnishlutleysi í starfseminni árið 2030 krefst þess að við einbeitum okkur að markvissri vöruþróun, rannsóknum og nýsköpun.
Við höfum þegar unnið að því að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda í starfseminni okkar með því að greina og setja fram helstu aðgerðir og markmið, ásamt því að innleiða viðeigandi mótvægisaðgerðir.
Nýjar sementsblöndur og steypuuppskriftir: Þróun á nýjum sementsblöndum, steypuuppskriftum og notkun annarra bindiefna.
Rannsóknir: Ný bindiefni í sementsblöndur, t.d. með íslensku móbergi. Þróun tengd jarðefna- og hringrásargarði.
Nýsköpun: Forsteypt og endurnotanleg einingakerfi. Þátttaka í nýsköpunarverkefnum.
Föngun koltvíoxíðs: Kolefnisföngunarverkefni sementsframleiðanda okkar mun gera steinsteypuna enn umhverfisvænni.
Orkuskipti og orkuendurnýting: Endurnýjun orkufreks búnaðar, aukin notkun á rafeldsneyti og útskipti á tækjaflota.
Berglind, ný og vistvænni steypuuppskrift sett á markað.
Móberg rannsakað í VPI-verkefni með liðsinni alþjóðlegra sérfræðinga.
Kolefnisföngunarstöð sementsbirgja verður tekin í notkun 24/25.
Endurnýjun orkufrekra ökutækja. Nýtt flokkunarkerfi og rafrænir reikningar.
Þátttaka í nýsköpunarverkefnum, t.d. Running Tide, Hringrásarhúsi og Félagsbústöðum.
Við erum staðfastlega þeirrar skoðunar að lausnir sem hafa alþjóðleg áhrif séu lykillinn að árangri í baráttunni gegn neikvæðum loftslagsbreytingum.
Þetta felur í sér að við öxlum ábyrgð á allri losun gróðurhúsalofttegunda sem á sér stað í heiminum í tengslum við framleiðslu og flutning á sementi sem er notað í steinsteypu, jafnvel þótt losunin frá sementsframleiðslu sé ekki formlega talin með í losunartölum á landsvísu.
Í starfsemi BM Vallár stafar 85-90% af heildarlosun CO2 frá sementi. Því er mikilvægt að við höldum áfram að þróa og kynna nýjar gerðir af steypu sem innihalda vistvænna sement og þar með vistvænni steypugerðir.
Berglind, vistvænni steypa, er dæmi um slíka nýjung í vöruframboðinu og hægt að fá hana með allt að 45% lægra kolefnisspori en hefðbundna steypu.
Unnið er að afar metnaðarfullu nýsköpunarverkefni hjá sementsframleiðanda okkar, Heidelberg Materials Sement, í Noregi. Þar er verið að reisa kolefnisföngunarstöð sem kemur til með að fanga helming af allri losun er hlýst af sementsframleiðslu fyrirtækisins.
Í kjölfarið verður hægt að draga verulega úr kolefnisspori sements og að auki verður hægt að fá kolefnishlutlaust sement.
Áherslur í umhverfisstefnu taka mið af því að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum frá starfseminni með því að:
Steypuframleiðsla og starfsemi verði kolefnishlutlaus 2030.
Hafa ábyrga nýtingu auðlinda að leiðarljósi.
Leggja áherslu á stöðuga vöktun, umbætur og stýringu umhverfisþátta til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Vinna að markvissri vöruþróun, nýsköpun og rannsóknum í eigin framleiðslu og í samstarfi við birgja og samstarfsaðila.
Stuðla að hringrásarhugsun í framleiðslunni með því að endurnýta, gera við, endurframleiða og endurvinna auðlindir sem falla til í rekstri á ábyrgan hátt.
Flokka úrgang sem fellur til í starfseminni, auka endurvinnslu, minnka matarsóun og draga úr almennu sorpi/urðun.
Víkja aldrei frá lagakröfum á sviði umhverfismála og viðhalda enn strangari kröfum þar sem við á.
Stuðla að orkusparandi aðgerðum í starfseminni með því að vakta, mæla og leita leiða til að draga úr rafmagns- og vatnsnotkun.