<p>BM Vallá gegnir forystuhlutverki í framleiðslu á steypu og múrvörum fyrir íslenskan byggingariðnað. Umhverfismál og sjálfbær nýting auðlinda er leiðarljósið í starfseminni.</p>
Í yfir sjö áratugi hefur BM Vallá verið í fararbroddi innan íslensks byggingariðnaðar og sérhæft sig í framleiðslu á steypu, hellum og múrvörum. Framleiðslan byggist á þekkingu, reynslu og gæðum og endist og stenst ströngustu kröfur við íslenskar aðstæður.
Hjá BM Vallá starfar hópur reynslumikilla sérfræðinga sem veita ráðgjöf til viðskiptavina. Þessi ráðgjöf er ekki einungis miðuð við að uppfylla þarfir viðskiptavina heldur einnig til að hvetja og styðja í átt að umhverfisvænni byggingariðnaði.
Með þessu leggur BM Vallá sitt af mörkum í baráttunni gegn loftslagsvánni og í að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum, í takt við vaxandi áherslu á sjálfbærni og umhverfisvernd í nútímasamfélagi.
BM Vallá státar af framleiðslu á fjölbreyttu og víðfeðmu vöruúrvali sem þjónar þörfum íslensks byggingariðnaðar.
Steinsteypa: Grunnstoð byggingar-iðnaðarins er steypa og er steinsteypan aðlöguð að íslenskum aðstæðum með áherslu á minna kolefnisspor, gæði og endingu.
Múr- og flotblöndur: Hágæðablöndur fyrir múrverk og flot sem tryggja góða endingu og fagurfræði í byggingum.
Hellur og garðeiningar: Sérsniðnar lausnir fyrir landslags- og útisvæðahönnun þar sem boðið er upp á fjölbreytt vöruúrval.
Forsteyptar húseiningar: Hagkvæmar og fljótlegar lausnir fyrir byggingariðnað með nær óendanlega möguleika í hönnuninni.
Endursala á múrvörum: Endingargóð og falleg múrkerfi ásamt sérhæfðum múrblöndum frá Sto.
BM Vallá rekur tvær múr- og fagverslanir Önnur er í Reykjavík og hin á Akureyri. Þá heldur fyrirtækið úti öflugri vefverslun sem gerir viðskiptavinum kleift að panta vörur og fá þær sendar hvert sem er á landinu.
Starfsemin er fjölbreytt og eru sviðin fjögur talsins ásamt stoðþjónustu sem er hjá móðurfélaginu. Fyrirtækið starfrækir m.a. steypustöð, múr- og helluverksmiðju, húseininga- og smáeiningaframleiðslu ásamt söluskrifstofum á þremur stöðum. Einnig eru starfræktar tvær rannsóknarstofur þar sem fara fram prófanir, rannsóknir og þróun á þeim vörum sem eru framleiddar hjá fyrirtækinu.
Umhverfismál og sjálfbær nýting auðlinda er rauður þráður í starfseminni og hefur BM Vallá sett sér það metnaðarfulla markmið að verða umhverfisvænsti steypuframleiðandi landsins. Stefnt er á að steypuframleiðslan og starfsemin verði kolefnishlutlaus 2030.
30% minna
35% minna
40% minna
45% minna
50% minna
BM Vallá er eitt af framúrskarandi fyrirtækjunum á Creditinfo-lista fyrir árið 2023. Einungis 1.006 fyrirtæki komust á listann eða um 2% allra virkra fyrirtækja hérlendis.
Þau fyrirtæki sem teljast framúrskarandi einkennast af stöðugum rekstri, traustum grunni og hafa jákvæð áhrif á hagkerfið og samfélagið í heild.
Starfsemin hefur hlotið jafnlaunavottun í samræmi við ÍST 85:2012 staðalinn. BM Vallá er einnig með gæðavottun á gæðakerfi sínu skv. alþjóðlega staðlinum ISO 9001. Gæðakerfið nær yfir alla þætti rekstrarins og er það hannað til að einfalda og bæta ákvarðanatökuferlið, tryggja gæði þjónustu og vara og stuðla að stöðugum umbótum.
Fyrirtækið er einnig í vottunarferli fyrir umhverfisstjórnunarkerfið ISO 14001 og öryggisstjórnunarkerfið ISO 45001 sem undirstrikar skuldbindingu þess við umhverfis- og öryggismál.
BM Vallá er eini gæðavottaði steypuframleiðandi landsins og hefur rekið gæðastjórnunarkerfi frá árinu 1996.
BM Vallá er rekið á traustum og öflugum grunni í öllum þáttum starfseminnar. Fyrirtækið hefur staðið sjálfstætt hvað varðar fjármögnun í mörg ár og er öll fjárfesting alfarið fjármögnuð með eigin fé fyrirtækisins.
Rekstur ársins 2023 gekk afar vel og var jákvæð afkoma úr reglulegri starfsemi. Ársreikningurinn fyrir þetta ár er enn í vinnslu en verður tilbúinn fljótlega. Að því loknu verða settar inn upplýsingar um fjárhagslega afkomu fyrirtækisins.
BM Vallá er í eigu Eignarhaldsfélagsins Hornsteins sem á að auki Björgun og Sementsverksmiðjuna.