<p>„Við leitum allra leiða til að draga úr kolefnisspori sementsins sem við notum fyrst enda skýrir sementið 85-90% af kolefnisfótspori steinsteypunnar.“ </p><p> </p><p>Þorsteinn Víglundsson, forstjóri</p>
Það er virkilega ánægjulegt að sjá þann árangur sem við náðum í loftslagsmálum á síðasta ári. Við náðum að draga úr kolefnisspori okkar um tæp 5,2% m.v. hverja framleidda einingu. Frá árinu 2020 hefur heildarkolefnisspor dregist saman um heil 19%. Við héldum áfram að þróa og bæta Berglindi, vistvænni steinsteypu, bættum verulega alla úrgangsflokkun og hófum tilraunaverkefni með endurnýtingu hellubrota í steinsteypu til að stuðla að bættri nýtingu auðlinda.
Yfirlýst markmið okkar um að steypuframleiðsla og starfsemi verði kolefnishlutlaus 2030 gerir það að verkum að allar okkar áherslur taka mið af því hvernig við getum dregið úr neikvæðum loftslagsáhrifum í daglegum verkefnum okkar, framleiðslu, vali á birgjum og athöfnum.
Á árinu unnum við að margvíslegum verkefnum sem koma til með að gegna mikilvægu hlutverki í baráttunni gegn loftslagsvánni. Þar má nefna þróun á nýju bindiefni í sementi með íslensku móbergi sem gæti haft afar jákvæð áhrif á kolefnispor byggingariðnaðarins á heimsvísu. Þá styttist í risastórt loftslagsverkefni sementsbirgja okkar, Norcem í Noregi, sem er að reisa kolefnisföngunarstöð og kemur til með að fanga alla losun frá sementsframleiðslunni. Vegna þessa gerum við ráð fyrir að geta boðið kolefnishlutlaust sement til mannvirkjagerðar hér á landi í fyrsta inn fyrir árslok 2025.
Viðskiptavinir okkar hafa tekið vel á móti Berglindi, vistvænni steypu, sem sýnir mikinn metnað margra framkvæmdaaðila í að hafa sem umhverfisvænsta steypu í mannvirkjum sínum. Þannig unnum við að byggingu nýs húsnæðis fyrir Félagsbústaði þar sem kolefnisspor steinsteypunnar var lækkað um allt að 45% með góðu samstarfi við hönnuði og verkkaupa.
Við fylgjumst grannt með orkuskiptum í tengslum við aksturs- og tækjaflota okkar og erum þátttakendur í þróunarverkefnum sem miða að lausnum tengt vistvænni orkugjöfum. Þannig gerum við ráð fyrir að taka inn fyrstu tækin sem knúin eru kolefnishlutlausu eldsneyti á árinu 2025. Forgangsröðunin okkar hefur verið alveg skýr. Við leitum allra leiða til að draga úr kolefnisspori sementsins sem við notum fyrst enda skýrir það 85-90% af kolefnisfótspori steinsteypunnar.
Samfélagsleg ábyrgð er okkur hugleikin og það endurspeglast í fjölbreyttum verkefnum sem við styðjum í gegnum samfélagssjóðinn Hjálparhella BM Vallár, og með langtímaverkefnum á borð við Römpum upp Ísland, Unicef og UN Woman.
Árangurinn sem við höfum náð er ekki sjálfgefinn. Ég vil þakka framúrskarandi teymi okkar fyrir mikla vinnu og elju. Framtíðarsýn okkar er afar skýr. Við ætlum okkur að verða umhverfisvænsti steypuframleiðandi landsins og setja okkur metnaðarfyllri markmið tengt umhverfismálum.
Þorsteinn Víglundsson, forstjóri