<p><span class="">Við framfylgjum stefnu og reglum um stjórnarhætti sem felur meðal annars í sér siðareglur og áherslu á mannréttindamál.</span></p>
Hjá BM Vallá eru skýrar stjórnhátta- og hlítnireglur sem ná meðal annars til mannréttindamála, varna gegn peningaþvætti, samfélags- og umhverfisáherslna auk siðareglna starfsfólks og birgja.
Allt starfsfólk fær leiðbeiningar og þjálfun varðandi meðhöndlun hugsanlegra hagsmunaárekstra og verklagsreglur til að koma í veg fyrir spillingu. Auk þess er veitt fræðsla um stjórnháttaviðmið, samkeppnislög, spillingarvarnir, ábyrgð, eftirfylgni og viðurlög við brotum á þessum reglum.
Starfsfólk er hvatt til að tilkynna ef það verður vart við brot á siðareglum. Til staðar er svokallað SpeakUp-úrræði sem einfaldar slíkar tilkynningar til muna.
Skuldbindingar gagnvart lögum og reglumÖll viðskipti skulu fara fram í samræmi við viðeigandi lands- og samkeppnislög og þær siða- og samvinnureglur sem hafa verið gefnar út. Starfsfólk skal ávallt starfa af heiðarleika og fagmennsku í öllu sínu starfi.
Spilling eða mútur
Notkun fjármuna fyrirtækisins í ólöglegum eða óviðeigandi tilgangi er með öllu óheimil, hvort sem um er að ræða að veita eða þiggja mútur. Settar hafa verið reglur um hagsmunaárekstra, ásamt því að reglur eru viðhafðar í tengslum við að veita eða þiggja gjafir eða önnur fríðindi.
Heilsu- og öryggismálÁhersla er lögð á að styrkja og bæta öryggismenningu innan fyrirtækisins, enda er öryggi og heilsa starfsfólks ávallt sett í forgang.
Umhverfismál alltumlykjandiSjálfbærni og umhverfismál eru höfð að leiðarljósi í starfseminni ásamt ábyrgri meðhöndlun náttúruauðlinda. Þar af leiðandi er reynt að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif starfseminnar þar sem það er tæknilega og fjárhagslega mögulegt.
Mannréttindi og réttindi starfsfólksFyrirtækið skuldbindur sig til að virða mannréttindi, stuðla að jafnrétti og tryggja sanngjarnar vinnuaðstæður fyrir allt starfsfólkið sitt.
Upplýsingaöryggi og persónuvernd
Ströngum kröfum og löggjöf um upplýsingaöryggi er fylgt ásamt meðhöndlum persónuupplýsinga, bæði hvað varðar viðskiptavini, birgja og starfsfólk.
Varnir gegn peningaþvættiReglubundnar athuganir og úttektir eru framkvæmdar til að draga úr áhættu á peningaþvætti eða öðrum ólögmætum athöfnum af hálfu þriðja aðila. Einnig er forðast að nota reiðufé í viðskiptum til að auka gagnsæi og tryggja að reglum sé fylgt.
Ábyrgð hvers starfsmannsHver og einn starfsmaður þarf að þekkja og fylgja siðareglum fyrirtækisins. Þá er hann skyldugur til að tilkynna um möguleg brot á þessum reglum í gegnum SpeakUp-úrræðið.
Jákvæð og uppbyggileg samskipti
Starfsfólk er hvatt til að eiga í jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum, og sýna ábyrgð í þeim tilgangi til að skapa gott vinnuumhverfi. Einnig er það hvatt til að tilkynna um óæskilega hegðun eða vandamál sem kunna að koma upp.
Siðareglur birgja mynda undirstöðurnar að öllum samningstengslum fyrirtækisins við birgja sína. Farið er fram á að birgjar fyrirtækisins virði og tileinki sér þessar siðareglur sem samrýmast gildum þess.
Siðareglunum er ætlað að veita vörn gegn spillingu ásamt því að setja fram skýrar áherslur í umhverfismálum. Þær eru jafnframt í samræmi við alþjóðlega staðla í samfélagsábyrgð, eins og SA 8000, auk þýsku löggjafarinnar um áreiðanleikakönnun fyrirtækja í birgjakeðjum sem og umhverfisstaðalsins ISO 14001.
Við förum eftir gildandi lögum og reglum í starfsemi okkar. Hlítnireglur eru endurskoðaðar og aðlagaðar reglulega til að endurspegla ríkjandi gildi og viðmið samfélagsins. Við beitum einnig sérstökum varúðarráðstöfunum í tengslum við stríðsaðstæður, svo sem í Úkraínu og Rússlandi.
Starfsemi BM Vallár er tengd Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og endurspegla þau áherslurnar er snúa að loftslagsmálum og samfélagsábyrgð. Fimm af þessum heimsmarkmiðum hafa verið valin til að vera í forgrunni í stefnu og aðgerðum fyrirtækisins:
Jafnrétti kynjanna
Nýsköpun og uppbygging
Sjálfbærar borgir og samfélög
Ábyrg neysla og framleiðsla
Aðgerðir í loftslagsmálum
Sjálfbærnistefnan er lýsandi fyrir áherslurnar í samfélagslegri ábyrgð og tekur stefnan mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í tengslum við umhverfisleg, félagsleg og stjórnháttaviðmið.
Skoða sjálfbærnistefnu BM Vallár