<p>Með samfélagssjóðnum Hjálparhella BM Vallár er veittur fjárstyrkur til margvíslegra samfélagsverkefna.</p>
BM Vallá starfrækir samfélagssjóð sem ber nafnið Hjálparhella og veitir fjárstyrki til margvíslegra samfélagsverkefna sem eiga það sameiginlegt að hafa jákvæð áhrif á samfélagið.Úthlutað er úr sjóðnum einu sinni á ári auk þess sem veittur er fjárstyrkur til samstarfsverkefna til lengri tíma. Meðal þeirra verkefna var stuðningur til UNICEF á Íslandi, UN Women og Römpum upp Ísland.
Viðskiptavinir BM Vallár gegna mikilvægu hlutverki í samfélagsverkefnum fyrirtækisins en ákveðið hlutfall af ársveltu fer í málaflokkinn. Þannig geta allir verið hjálparhellur og látið gott af sér leiða.
Árlega er einnig valinn hjálparhella ársins, sem er starfsmaður samstæðunnar sem hefur vakið athygli og eftirtekt í tengslum við þátttöku í samfélagstengdum verkefnum.
BM Vallá hefur frá upphafi verið hluti af verkefninu Römpum upp Ísland sem snýr að því að auka aðgengi hreyfihamlaðra að verslun og þjónustu á landinu. Nú þegar hafa um 1.000 rampar verið reistir um allt land og það með hellum frá BM Vallá.
Árið 2023 veitti BM Vallá fjárstyrk við vetraraðstoð Unicef í Afganistan sem nær til um 111.000 barnafjölskyldna til að standa straum af kostnaði á nauðsynlegum vistum og grunnþjónustu til að sinna velferð barna. Það felur í sér næringarríka fæðu, hreint vatn, hreinlætisvörur, föt, skóla- og sjúkragögn og hita.
Veittur er fjárstyrkur við jafnréttisátakið Kynslóð jafnréttis sem UN Women fer fyrir. Meginmarkmið átaksins er að vinna að úrbótum á þeim sviðum þar sem hallar mest á konur og stúlkur. Styrkurinn nýtist við starf UNWÍ sem miðlar upplýsingum út frá málefnasviðum samtakanna.
Átta verkefni hlutu fjárstyrk úr samfélagssjóðnum árið 2023 en heildarstyrkupphæð til verkefnanna var 2.300.000 kr.
Fjárstyrkur til að standa straum af kostnaði á jólagjöfum handa börnum á aldrinum 9-17 ára. Valdar eru jólagjafir í samráði við foreldra barnanna.
Fjárstyrkur til að fjármagna samfélags-miðlaherferð. Markmið hennar er að fræða ungt fólk um mismunandi kynsjúkdóma, helst klamydíu og lekanda, og segja frá því hvernig það er að fara í kynsjúkdómatékk.
Framtak sem með starfi sínu stuðlar að jafnrétti kynjanna og valdeflingu þátttakenda með tónlistarkennslu og fræðsluerindum um ýmis samfélagsleg málefni. Þátttakendur tilheyra jaðarsettum kynjum í tónlist (stelpur, stálp, trans strákar og intersex krakkar) og nær æskulýðsstarfið yfir aldurshópinn 8-18 ára.
Fjárstyrkur fyrir jólamáltíðasöfnun kaffistofu Samhjálpar. Markmið verkefnisins er að létta álagi af kaffistofunni og tryggja að fólk í neyð, sem ekki hefur efni á mat, geti borðað heitar máltíðir áfram.
Meginmarkmið Spjöllum með hreim er að skapa ókeypis vettvang fyrir fullorðið fólk af erlendum uppruna til að æfa sig í að tala íslensku í öruggu umhverfi undir leiðsögn reyndra kennara. Fjárstyrkurinn fer til að standa straum af kostnaði viðburða sem þátttakendur sækja frítt.
Líf styrktarfélag stendur nú fyrir söfnun á nýjum þráðlausum nema fyrir fóstursírita og fer fjárstyrkurinn upp í þá söfnun. Neminn gefur fæðandi konum kost á að vera á hreyfingu og í baði sé áhugi fyrir því. Sýnt hefur verið fram á að hreyfing móður eykur líkur á að fóstrið gangi eðlilega niður í grind móður og eykur þar með líkur á eðlilegri fæðingu.
Tvisvar á ári býður Kraftur krabbameinsgreindum félagsmönnum sínum auk eins aðstandanda upp á endurnærandi Lífið er núna helgi. Farið er út á land í tvær nætur þar sem lögð er áhersla á uppbyggjandi dagskrá, bæði andlega og líkamlega. Helgin er þátttakendum að kostnaðarlausu og fer fjárstyrkurinn upp í kostnað við slíka helgi.
Markmið verkefnisins er að þétta öflugt bæjarfélag saman við jákvæða afþreyingu sem í þessu tilfelli felst í að hlaupa og hafa gaman. Leyfa fólki að upplifa hvað það er gaman að hreyfa sig í góðra vina hópi og hvað hvatning skiptir miklu máli. Fjárstyrkurinn er notaður í tengslum við kostnað við upphitun fyrir hlaupið og leigu á hljóðkerfi.