FÓLKIÐ OKKAR
Við leggjum mikinn metnað í að styrkja fólkið okkar til frekara náms, starfsþróunar og að skapa góð starfsskilyrði.
Starfsfólk hjá BM Vallá, og móðurfélaginu Hornsteini, eru hátt í 180. Það hallar á konur í störfum hjá fyrirtækinu, en 12% starfsfólks eru konur. Fyrirtækið starfar innan þess geira sem hingað til hefur verið álitinn karllægur, en unnið er markvisst að því að leiðrétta hlutfall kynjanna innan fyrirtækisins með áherslu á sveigjanleika í starfi og vinnutíma og skýrri stefnu um jöfn tækifæri.
Síðastliðin tvö ár hefur verið lögð áhersla á fræðslu tengda jákvæðum samskiptum og að efla upplýsingamiðlun innan fyrirtækisins, sérstaklega þegar kemur að miðlun til erlends starfsfólks. Þannig hefur allt efni fyrir starfsfólk verið þýtt yfir á ensku og pólsku og túlkar eru á starfsmannafundum þegar á þarf að halda.
Starfrækt er öflugt fræðslukerfi, Samsteypan, ásamt því að starfsfólk hefur aðgang að rafrænu kerfi hjá utanaðkomandi fræðsluaðila. Þar geta allir fundið fræðsluefni við sitt hæfi, hvort sem er til að auka færni í starfi eða til að bæta þekkingu almennt. Áður en nýtt starfsfólk kemur til starfa þarf það undantekningarlaust að ljúka nýliðafræðslu og öryggisþjálfun.
BM Vallá leggur áherslu á að ábyrgð og verkferlar séu skýrir og aðgengilegir og byggir stjórnun á gagnsæi og hreinskiptni. Lögð er rík áhersla á jafnrétti og hvers konar mismunun er óheimil.
Á síðasta ári tók BM Vallá þátt í alþjóðlegri könnun til að kanna starfsánægju starfsfólks. Rúmlega 90% starfsfólks sem tók þátt í könnuninni greindi frá mikilli ánægju með starfsreynslu sína hjá fyrirtækinu. Mikil áhersla er lögð á þátttöku starfsfólks í slíkum könnunum til að fá sem skýrustu endurgjöf og til að geta brugðist hratt við niðurstöðum um það sem betur megi fara.
Fyrirtækið vill vera eftirsóknarverður vinnustaður sem tryggir góð starfsskilyrði og möguleika til starfsþróunar. Leiðarljós í samskiptum eru siða- og samvinnureglur starfsfólks. Þær voru gerðar í samvinnu við starfsfólk til að ramma betur inn áherslur, reglur og viðmið í tengslum við jákvæð samskipti og samstarf.
Hjá BM Vallá er rúmlega 50% starfsfólks af erlendu bergi brotið og því óhætt að segja að hjá fyrirtækinu ríkir mikil fjölmenning. Flestir eru frá Póllandi, en einnig er starfsfólk frá Litháen, Kamerún, Filippseyjum, Úkraínu, Bandaríkjunum, Taílandi og Lettlandi. Það er því mikilvægt að upplýsingar komist til skila á íslensku, ensku og á pólsku og að allir hafi sömu tækifærin til starfsþróunar innan fyrirtækisins, óháð uppruna.
Starfsfólk er á breiðu aldursbili og er lögð mikil áhersla á að allir hafi jöfn tækifæri óháð aldri.
Sökum sérhæfðrar starfsemi fyrirtækisins er flest starfsfólk með menntun sem starfið krefst, hvort sem er á sviði iðn-, tækni- eða háskólamenntunar eða vinnuvélaréttinda og meiraprófs.
Mikill metnaður er lagður í að viðhalda þeirri miklu þekkingu og reynslu sem býr hjá starfsfólki og yfirfærslu þekkingar. Starfsfólk getur fengið styrki til frekara náms og endurmenntunar til að efla færni og þekkingu. Einnig hefur fyrirtækið styrkt starfsfólk til að fá aukin vinnuvélaréttindi og stjórnunarnáms. Að auki stendur öllu erlendu starfsfólki til boða að fara í íslenskunám.
Starfað er eftir heilsustefnu sem stuðlar að líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu. Heilbrigði á sál og líkama eru höfð að leiðarljósi í allri vinnu hjá fyrirtækinu og skilningur er á að góð heilsa sé ein aðalforsenda þess að geta tekið virkan þátt í samfélaginu. Starfsfólk er hvatt til þátttöku í heilsueflingu fyrirtækisins, að huga að heilbrigðu líferni og leggja rækt við eigin heilsu.
Starfsfólk fær íþróttastyrk til að greiða niður kostnað við hreyfingu og íþróttaástundun.
Fyrirtækið er í samstarfi við Heilsuvernd sem er viðurkenndur þjónustuaðili á sviði heilsu- og vinnuverndar hjá Vinnueftirliti Ríkisins.
Mikil áhersla er lögð á hollan mat í mötuneyti BM Vallár, þar sem starfsfólk hefur kost á að borða góðan og næringarríkan hádegismat því að kostnaðarlausu, utan hlunnindaskatts.
BM Vallá er með jafnlaunavottun og er jafnlaunastefna órjúfanlegur hluti af launastefnu. Lögð er rík áhersla á jafnrétti og hvers konar mismunun er óheimil. Jafnlaunastefna er órjúfanlegur hluti af launastefnu fyrirtækisins sem og viðbragðsáætlun sem hefur það að markmiði að útrýma einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundnu áreiti og ofbeldi á vinnustað.
Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti á vinnumarkaði.
Gagnsæi launakerfisins er grunnurinn að forsendu jafnlaunavottununarinnar.
Með jafnlaunavottununni er tryggt að stjórnkerfið fylgi jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012 og að kröfur hans eru uppfylltar og að verklag og aðferðir gefi skýra mynd af jafnlaunaviðmiðum ásamt því að auðvelt er að vísa í skjalfest gögn þessu til stuðnings.
Starfsfólk hefur gildi BM Vallá að leiðarljósi í sínum störfum og liggja þau að baki allri fyrirtækjamenningu okkar.
Gildi BM Vallár eru:
Styrkur
Við byggjum á samvinnu, áræðni og metnaði
Áreiðanleiki
Við erum áreiðanleg og vitum að þekking og reynsla mótar framtíð okkar
Framsýni
Við erum framsýn og höfum ávallt nýsköpun, sjálfbærni og umhverfismál að leiðarljósi