Við störfum eftir skýrri stefnu í heilsu- og öryggismálum og teljum að það sé ein undirstaða ábyrgrar mannauðstefnu.
Áhersla er lögð á greiningar á áhættu og aðgerðir til að draga úr henni við störf. Starfsfólk er hvatt til að huga vel að eigin öryggi í störfum með því að framkvæma stuttar áhættugreiningar áður en verk hefjast.
Allt starfsfólk hefur skýrt umboð til að stöðva öll verk sem það telur að ekki sé nægilega öruggt hverju sinni.
Ýmsir mælikvarðar og aðferðir eru notaðir til eftirlits og eftirfylgni, svo sem áhættugreiningar, atvikaskráningar, öryggissamtöl og úrbótaverkefni.
Framkvæmdar eru innri úttektir, ábendingar skráðar og markvisst unnið að úrbótum. Haldið er utan um skráningar, úrbótaverkefni og aðgerðir úr innri úttektum í miðlægu atvikaskráningarkerfi.
Unnið er úr þessum atvikum eftir tilefnum og öll alvarleg atvik sem krefjast fyrstu hjálpar, læknismeðferðar eða valda fjarveru eru rannsökuð, rótargreind og unnið að fyrirbyggjandi aðgerðum til að koma í veg fyrir að þau endurtaki sig.
Á árinu 2021 voru skráð:
Skráð alvarleg næstum slys sem hefðu getað valdið fjarveru eða bana krefjast samskonar rannsóknar og slys, sem og fyrirbyggjandi aðgerða.