Henta vel fyrir gangandi umferð og bílastæði.
Gegndræpar hellur eru með meira millibil (fúgubreidd) á milli hellueininga eða 6 mm bil. Fúgurnar eru þannig útfærðar frá yfirborði niður að undirlagi þannig að vatn eigi greiða leið af yfirborði hellna niður í gegndræpan ílagnarsand í gegnum fúgubilin. Hliðarstuðningur milli hellueininga er útfærður með innbyggðum nibbum á hellueiningum.
Hliðarstuðningur milli hellna skal vera fullkomlega falinn með fúgusandi þannig að útlit gangstéttar sé samkvæmt hönnunarkröfum.
Stærðir: 20x40 cm | þykkt 8 cm 40x40 cm | þykkt 6 cm Litir: Grár, svartur, jarðbrúnn Álagsflokkur: I / III
Verkefni: Seljavegur 2 og Óðinstorg